GoRed fyrir konur

GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdómunum.

Skoða GoRed 2024 veftímarit

Af hverju GoRed?

GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdómunum. Aukin vitund kvenna um áhættuþættina hefur einnig óbein áhrif á lífsstíl karla og ungmenna. Nánar má lesa um alheimsátak GoRed með því að fara hér.

GoRed átakið er alheimsátak, á vegum World Heart Federation. Um er að ræða alþjóðlegt langtímaverkefni sem hófst í Bandaríkjunum og víða í Evrópu árið 2004 og hefur verið haldið á Íslandi frá árinu 2009.

Hvaða konur eru í forgangi?

Einkennalausar konur, 50 ára og eldri, ættu að fara í áhættumat til greiningar á áhættuþáttum á a.m.k. 5 ára fresti.

Einkennalausar konur yngri en 50 ára sem hafa ættarsögu um hjarta- og æðasjúkdóm hjá 1. gráðu ættingjum og/eða með sögu um ættgenga blóðfituröskun ættu að fara í skoðun reglulega í samráði við sinn lækni.

Helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma hjá konum

• Aldur
• Reykingar. Kona sem reykir þre til fjórfaldar áhættu sína á að fá hjartasjúkdóm.
• Sykursýki er alvarlegur áhættuþáttur hjá konum.
• Blóðfituröskun
• Háþrýstingur
• Ættarsaga um kransæðasjúkdóm hjá 1. gráðu ættingjum
• Ofþyngd (BMI > 25-30) sérstaklega aukin kviðfita
• Offita (BMI>30)
• Hreyfingarleysi

Ofangreindir áhættuþættir eru flestir einkennalausir og því þarf að mæla þá sérstaklega.

Konur eru öðruvísi

Einkenni hjartaáfalls og heilaslags

Konur eru líklegri til að upplifa eftirfarandi einkenni hjartaáfalls
• Óútskýrðan slappleika eða þreytu
• Óeðlilegt kvíðakast eða verða taugaóstyrkar
• Meltingartruflanir eða verk vegna uppþembu

Konur og karlar upplifa eftirfarandi einkenni hjartaáfalls
• Þyngsl eða verk fyrir brjósti eða fyrir neðan bringubein
• Óþægindi eða verk milli herðablaða, í hálsi, kjálka eða maga
• Verk sem kemur við áreynslu og hverfur við hvíld og getur verið fyrirboði kransæðastíflu
• Stöðugan verk fyrir brjósti etv. með ógleði og kaldsvita sem getur verið einkenni um bráðakransæðastíflu og krefst tafarlausrar meðferðar

Konur og karlar upplifa eftirfarandi einkenni heilaslags
• Dofa eða máttleysi í andliti, handlegg eða fæti, aðallega í öðrum helmingi líkamans
• Ringlun, erfiðleika með að tala eða að skilja
• Erfiðleika með að sjá með öðru eða báðum augum
• Erfiðleika með gang, svima, skort á jafnvægi eða samhæfingu
• Slæman höfuðverk af óþekktri orsök
• Yfirlið eða meðvitundarleysi

Staðsetning Hjartaverndar

Staðsetning

Holtasmári 1, 2. hæð. 201 Kópavogur, Ísland Kt.: 600705-0590

Skoða á korti

Hafa samband við hjartavernd

Hafa samband

Opnunartímar hjartaverndar

Opnunartímar

  • Mán - Fös: 08:00 - 16:00
  • Helgar: Lokað
Holtasmári 1, 2. hæð., 201 Kópavogur, Ísland
Móttaka: 535-1800, Fax: 535-1801
Opnunartími í dag: 08:00 - 16:00
Fara efst á síðu